|
Raunir Baunverjanna |
|
Blogg7.6.2010Sumarið er tíminn :DÞað er ýmislegt búið að gerast síðan síðasta færsla var skrifuð. Þetta venjulega er á sínum stað, skóli og vinna. Það er búið að rigna heilmikið á síðustu vikum, en síðan birti loksins til í síðustu viku og hefur haldist nokkuð gott síðan. Við höfum því reynt að nýta það eins mikið og hægt er, erum búin að skella okkur 2x í kano/kajak siglingu, þar sem mikið var róið, hlegið og skvett :) Við nýttum grillið líka heilmikið, þar sem að margir í húsinu tóku sig saman og grilluðu dýrindis mat :P Svo skruppum við í Bakken í gær í dýrindis veðri, þetta var kölluð sambýlisferð þar sem að stór hluti Íslendingana í húsinu okkar fór með. Með í för voru Hjalti og Silja en þau eru í námi í Svíþjóð en áttu leið hér um og skelltu sér því með :) Síðan erum við búin að fá heimsóknir frá skemmtilegu fólki. Kjartan bróðir gisti hjá okkur í tvær nætur á meðan hann var á einhverjum vinnufundum og að sjálfsögðu var honum tekið fagnandi. Rakel, Reynir og Ernir Rúnar komu í viku heimsókn um miðjan maí, með þeim var skroppið í nokkrar bæjarferðir og farið yfir til Malmö og verslað svona eins og nokkrar flíkur... og smakkað á gríska goðsagnakennda bjórnum MYTHOS :) Einnig hefur mikið verið um afmælisveislur og núna síðast hjá Steinunni Dís sem varð 1 árs þann 5.júní, en það er dóttir vina/nágranna okkar. Tumi fékk að vita að hann fengi að fara með til S-Afríku með prófessornum sem hann er að skrifa hjá - vá hvað ég væri til í að fara með! Brottför þangað er 12.júní og verður hann í 2 vikur! Hann er að fara að kynna Playware deildina og setja upp alls konar fótboltaleiki með flísunum sem hann er að nota í verkefninu sínu fyrir innfædda krakka, aðallega í fátækrahverfunum. Þið getið skoðað þessa síðu til að sjá meira um þetta, og skoða myndbönd sem sett verða inn á meðan á ferðinni stendur. 1.3.2010Smá updateJæja, nú er orðið langt síðan ég hef hripað eitthvað hérna, ákvað að bæta úr því :)
Lífið hérna úti gengur bara sinn vanagang, ég er í skólanum frá 8-5 alla daga og Arndís vinnur næturvaktir aðra hverja viku. Kvöldum og helgum er eytt í að forrita gitargrip v2.0 og greitt aukaverkefni sem ég er með hérna hjá Playware.
Veðrið er búið að vera ógeðslegt allan febrúar, skítkalt og ótrúlega mikill snjór fyrir DK. Maður krossleggur fingur og vonar að þessu fari að ljúka fljótlega, en ég hef nú ekki mikla trú á að veðrið verði gott fyrr en eftir mánuð.
En svo góðar fréttir :) Við kláruðum multitouch kúrsinn í janúar, og skiluðum af okkur verkefninu. Kennarinn var ekkert lítið sáttur með útkomuna og er þegar búinn að biðja okkur að fara með borðið á sýningu í apríl. Þetta verkefni hefur vakið mikla athygli hérna, og margir kennarar sem að hafa áhuga á að nota það og þróa frekar. Hvað verður úr því kemur í ljós, en það er amk gaman að fá svona viðbrögð.
Verkefnið gengur ágætlega og er í stöðugri þróun. Við Henrik erum mikið að spá í hvernig við getum notað feedback til að bæta leikina, og ég hef verið að þróa einfalda leiki sem miða að því að venja leikinn að notandanum, en ekki öfugt. Þetta er allt saman mjög nýtt og því hef ég lítil viðmið svo að ég bara veð áfram með þetta eins hratt og örugglega og ég get, og ég held að allir hér séu sáttir við mig. Danska ríkissjónvarpið kom hingað í dag að taka upp, og Henrik vildi endilega hafa mitt dót með, svo að ég hlýt að vera að gera eitthvað rétt :)
Hvað fleira... já... ég og Sævar erum að fara á CeBit tæknisýninguna í Hanover um næstu helgi, það ætti að verða helvíti gaman. Reyndar er ferðin frekar klikkuð, rútuferð aðfaranótt laugardags frá 11-9, sýning frá 9-18 og rútuferð frá 18-2 :D Bara stemming.
Man nú ekki eftir neinu fleiru til að segja frá í bili, þannig að þar til næst... :)
Setti myndband af borðinu hérna fyrir neðan ef þið hafið ekki séð það :)
kv.
Tumi
30.1.2010Var einhver að minnast á blogg??ATHUGIÐ MYNDIR FRÁ JANÚAR MÁ FINNA HÉR Það er nú ansi langt síðan það var bloggað Desember flaug áfram eins og við er að búast. Tumi á fullu að sinna sínu námi og Arndís að vinna. Upp úr miðjum mánuðnum byrjaði að snjóa og hefur verið hvít jörð síðan. Danir eru alveg að missa sig yfir öllum þessum snjó og það er alveg greinilegt að þeir hafi ekki fengið neina kennslu í snjóakstri, 20 mín ferðalag í bíl tekur núna klukkustund eða jafnvel lengur. Við flugum svo heim að kvöldi 22.des, vegna "worse weather conditions in Denmark and other parts of Europe" (þetta gjall í hátalarakerfi flugvallarins á þriggja mínútna fresti... engar ýkjur hér á ferð, ég tók tímann!!) seinkaði fluginu okkar um 1 eða 2 tíma. Við komum okkur vel fyrir í quiet area á flugvellinum þar sem að eru hægindastólar og þráðlaust netsvæði. Með þessu móti fundum við ekki fyrir seinkuninni:) Við lentum loks á Íslandi um kl.02 þann 23.des. Við fengum graflax með öllu tilheyrandi þarna um nóttina, fórum í jólaklippingu til Berglindar um morguninn, fórum svo að kíkja í heimsóknir og stússast þetta síðasta jóla jóla. Fórum í friðargöngu um kvöldið og enduðum svo á að pakka inn öllum jólagjöfunum. Jóladagarnir voru hefðbundnir, matarboð, matarboð og fleiri matarboð, þar sem étið var á sig gat :P það þarf nú ekki að hafa fleiri orð um það. Þann 28.des ákváðum við svo að tími væri kominn til að skella sér í flugeldasölu hjá Björgunarsveitinni Ársæli, þar eyddum þónokkrum klukkutímum í að pranga púðri inná fólk (28., 30., og 31.des fóru í þessa skemmtilegu iðju) :) Bjsv. Ársæll þakkaði okkur fyrir hjálpina með því að senda okkur inn í gamlárskvöldið með pakkaðan bíl af púðri, ekki leiðinlegt það. Nýja árið hélt áfram með matarboðum:) allt þar til að við héldum af landi brott síðasta jóladag 6.janúar. Þegar við mættum aftur á Gammelmosevej var búið að hengja klósettpappír fyrir útidyrahurðina okkar þar með áletrun sem bauð okkur velkomin heim:) Það hef enn enginn lýst gjörningnum á hendur sér en þetta olli breiðu brosi hjá okkur:))) Íbúðin tók svo á móti okkur eins og við skildum við hana, fyrir utan að hún var örlítið kaldari en í minningunni... enda bara 18°c þar inni. Því skrúfuðum við upp hitann á ofnunum og tókum upp úr töskunum til að halda á okkur hita. Arndís byrjaði svo að vinna tveimur dögum seinna og Tumi fór að undirbúa mastersverkefnið. Það er búið að vera mikil umræða um samdrátt í heilbrigðiskerfinu hérna úti og varð vinnustaður Arndísar ekki útundan þar. Um miðjan janúar var 200 manns sagt upp störfum á sjúkrahúsinu í Herlev. Arndís slapp og í stað þess að vera beðin um að minnka við sig vinnuna var henni boðið að hækka í starfshlutfalli og taka fastar næturvaktir. Hún mun því vinna 7 næturvaktir í röð og er svo 7 daga í fríi (vegna næturálags kemur þetta út eins og fullt starf). Fyrsta törnin er búin og gekk hún ágætlega fyrir sig, en fríið inn á milli er alveg dásamlegt:) Tumi er byrjaður á verkefninu sínu, fór hann til Odense í einn dag til að læra að forrita ljósaflísarnar sem hann verður að vinna með. Síðan er hann að þreifa sig áfram með þetta. Hann hitti leiðbeinandann sinn í gær sem varð alveg hissa þegar hann sá hvað drengurinn var kominn langt áleiðis með verkefnið :) Síðasta vika hefur svo snúist um handbolta og meiri handbolta eins og hjá svo mörgum. Vonumst við eftir góðum leik hjá íslenska liðinu í dag á móti því franska. Hafðu það gott í veðurblíðunni á Íslandi eða hvar sem þú lesandi góður ert staddur. Við sendum okkar bestu snjókveðjur frá "Ís"mörkinni. Þar til næst, A&T 21.11.2009Smá update :)Jæja, nú fer að verða liðinn mánuður síðan síðast var bloggað, svo að ég ákvað að gera eitthvað í þessu... Lífið hefur verið að ganga sinn vanagang. Skólinn tekur upp allann minn tíma eins og staðan er núna, enda er farið að sjá fyrir endan á síðustu kúrsunum sem ég þarf að taka í þessu mastersnámi. Skil eru á nokkrum stórum verkefnum 4. des. og 15. des, svo er eitt próf 18. des og svo er ég kominn í frí. Ég er í 4 kúrsum þessa önnina og hafa þeir allir verið sæmilega strembnir, en mjög skemmtilegir. Það hefur verið nóg handavinna í þessu, ekki bara reikna í tölvu, svo að það hefur gert þetta mun áhugaverðara í alla staði. Ekki er neitt mikið að frétta af mastersverkefninu mínu ennþá, ég mun hitta prófessorinn eftir helgi til að ræða betur um möguleikana á verkefni, en ég er amk búinn að fá vilyrði fyrir að gera verkefnið hjá department of playware (www.playware.dk). Verkefnið mun líklegast tengjast áframhaldandi þróun á "gáfuðum flísum" (intelligent tiles) sem að notaðar eru sem leiktæki, endurhæfingartæki, þjálfunartæki og ég veit ekki hvað... Hægt er að lesa meira um þær hérna. Það góða við verkefni við þessa deild er að þeir vinna mikið í forritun og smáspennu, sem að er mitt áhugasvið, svo að ég er ekki í neinum vafa um að ég finni mér gott verkefni þarna. Ég læt vita þegar ég veit betur hvað gerist :) En já, annars er staðan hérna bara nokkuð góð. Arndís er komin aftur til Danmerkur, en hún fór heim í síðustu viku til að vera viðstödd útför frænda síns. Hún var varla lent hérna aftur þegar að búið var að hringja hana út í vinnu, svo að okkur leiðist alls ekki, hún að vinna og ég að læra :) Svo er bara planið að nota þessa daga eftir 18. des til að slappa af, versla, fara á skauta á kongens nytorv og fá sér glögg á hvids vinstue. Svo er stefnan sett á klakann að kvöldi 22. des. Ég læt þetta nægja í bili, bið að heilsa öllum heima. kv. Tumi 29.10.2009Vika 44 :)Vá hvað þessi vika er búin að vera skemmtileg og fljót að líða! Síðasta sunnudag kom félagi Tuma til okkar, hann fékk að nýta svefnsófann í þrjár nætur. Hann fær tilnefninguna: Fyrirferðarminnsti gesturinn :) það fór svo lítið fyrir honum. Á mánudaginn fórum við á tónleika með MUSE, þetta voru rosalega flottir tónleikar! Það ringdi mjög mikið á okkur á leið okkar til Parken þar sem tónleikarnir voru haldnir, ég var reyndar með regnhlíf en Tumi vildi frekar rigna niður... honum sló næstum niður í leiðinni. Þegar inn í Parken var komið voru ekkert nema Íslendingar í kringum okkur, fyrir ofan, neðan og til beggja hliða - ótrúlegt. Þriðjudagurinn fór í að vinna og miðvikudagurinn fór í að hitta á þrjár íslenskar stelpur sem útskrifuðust með mér úr hjúkrunarfræðinni heima, það er alltaf gaman að hittast og slúðra:). Rétt áður en ég var að leggja af stað heim eftir hittinginn þá hringdi pabbi í mig og sagðist vera kominn á Kaupmannahafnar-Strikið eftir að hafa verið á flækingi annars staðar í DK. Ég fór því að hitta hann og félaga hans. Tumi var svo sætur að kaupa góðan mat handa okkur og elda á meðan við reyndum að koma okkur heim á bílaleigubíl sem var án staðsetningartækis... mér fannst það frekar erfitt þar sem að ég tek alltaf lestina heim og rataði ekkert í myrkrinu. Til mikillar mildi var ég með GPS tæki í símanum sem kom okkur á leiðarenda að lokum. Ég er svo að fara á næturvakt í nótt, síðan ætla ég að sofa eins lengi og ég get, koma mér í rífandi stemmningu, fara svo í bæinn með Tuma og nágrönnum okkar og taka á móti jólabjórnum og skemmta okkur eins lengi og við nennum:) Laugardagurinn fer svo í mjög svo ameríska hefð... Halloween. En flestallir íbúar hússins ætla að mæta og skemmta sér saman í furðulegum búningum. Það ríkir mikil leynd yfir búningunum þetta árið og því get ég ekki sagt ykkur hvernig við Tumi ætlum okkur að vera... en kannski maður setji inn myndir eftir helgina. Til að fylla upp í tómar stundir á daginn prjóna ég. Í vinnslu er lopapeysa á pabba, ég er búin að festa ermarnar á og er byrjuð á axlarstykkinu (mynstrinu), peysan ætti því með þessu áframhaldi að klárast vel fyrir jólin. Svo ég segi ykkur líka fréttir af Tuma, þá er hann á fullu að leita eftir mastersverkefni. Hann er búinn að fara á fund með manni sem er yfir Playware-deildinni í skólanum og leyst vel á það sem er í boði þar. En eigum við ekki bara að pressa á hann að koma með næstu bloggfærslu með frekari skólafréttum ;) |
Vafraðu umBaunverjarnir Nafn: Arnar Tumi Þorsteinsson / Arndís SverrisdóttirFarsími: +45 3020 4554 / +45 3020 2618Tölvupóstfang: arnartumi@gmail.com / arndiss@gmail.comMSN netfang: arnttor@hotmail.com / arndiss@hotmail.comAfmælisdagur: 8. júlí 1983 / 26. ágúst 1983Heimilisfang: Gammelmosevej 266, 2880 Bagsværd, DKHeimasími: 496 1154Flettingar í dag: 1 Gestir í dag: 1 Flettingar í gær: 26 Gestir í gær: 8 Samtals flettingar: 21629 Samtals gestir: 7853 Tölur uppfærðar: 31.7.2010 05:38:22 Tenglar |